Skip to product information
Ziggy Rúmbotn Natural Raw
1/3

Ziggy Rúmbotn Natural Raw

209.990 kr

Ziggy rúmbotninn er hannaður með áherslu á plássnýtingu og bogadregnar línur. Sex geymsluhólf liggja utan um rammann, þrjú á hvorri hlið sem gerir rúmbotninn sérstaklega veglegan. 


Allar dýnur í viðeigandi stærð passa  í alla rúmbotna frá Karup. Framleitt í Evrópu.

Efni

Allur viður sem notaður er í húsgögnin frá Karup Design er FSC® vottaður (Forest Stewardship Council®). Vottunin tryggir sjálfbæra skógrækt þar sem aldrei eru hogginn fleiri tré en skógurinn ræður við hverju sinni. Vottunin tryggir einnig mannúðleg vinnubrögð þegar kemur að starfsfólki og dýrum. Karup notar við frá Eistlandi, Finnlandi og Svíþjóð og viðurinn er rekjanlegur í gegnum FSC® númer hverrar vöru.

Hnútarnir í Furunni eru einstök einkenni hvers húsgagns fyrir sig. Engin tvö húsgögn líta eins út og búast má við náttúrulegum breytingum á viðnum með tímanum þegar kemur að sólarljósi, loftslagi og raka.

Stærð

140cm
Breidd 168cm
Lengd 205cm
Hæð 29cm
Fætur 2,5cm

160cm
Breidd 188cm

Lengd 205cm 

Hæð 29cm

Fætur 2,5cm

180cm

Breidd 208cm

Lengd 205cm 

Hæð 29cm

Fætur 2,5cm

Um vörumerkið

Danska húsgagnafyrirtækið Karup Design var stofnað árið 1972 og sérhæfir sig í hönnun fjölnota húsgagna sem hámarka plássnýtingu á stílhreinan hátt. Vörumerkið hefur frá upphafi sótt hugmyndir í hefðbundnar japanskar svefnlausnir og fagurfræði í bland við skandinavísk áhrif.

Fleiri vörur

Matreiðslubókin Fræ

Fræ hefur að geyma rúmlega hundrað fjölbreyttar uppskriftir að gómsætum réttum úr plönturíkinu. Uppskriftirnar á síðum bókarinnar eiga það sameiginlegt að vera litríkar og bragðmiklar og það er á allra færi að reiða þær fram.