Skip to results list

Hvaða futon dýna hentar þér?

Japanska orðið Futon (布団) er notað til að lýsa svefnplássi. Futon dýnur eru hefðbundnar japanskar rúmdýnur og voru upprunalega eingöngu fylltar með bómull sem gerði fólki kleyft að rúlla upp til geymslu yfir daginn og þar með nýta íbúðarrými á margvíslegan hátt.

Karup Design hefur framleitt handgerðar futon dýnur í Evrópu í yfir 30 ár og blandar saman japönsku hefðinni við vestræn áhrif.  

Futon rúmdýnur eru þynnri, þéttari, liprari og einfaldari en flestar svefnlausnir sem við höfum vanist í vestræna heiminum. 

Rokyo býður upp á ólíkar futon rúmdýnur til að mæta þínum þörfum en munurinn liggur fyrst og fremst í stífleika og efnum. 

Skoða nánar