Hvaða futon dýna hentar þér?

Japanska orðið Futon (布団) er notað til að lýsa svefnplássi. Futon dýnur eru hefðbundnar japanskar rúmdýnur og voru upprunalega eingöngu fylltar með bómull sem gerði fólki kleyft að rúlla upp til geymslu yfir daginn og þar með nýta íbúðarrými á margvíslegan hátt.

Karup Design hefur framleitt handgerðar futon dýnur í Evrópu í yfir 30 ár og blandar saman japönsku hefðinni við vestræn áhrif.  

Futon rúmdýnur eru þynnri, þéttari, liprari og einfaldari en flestar svefnlausnir sem við höfum vanist í vestræna heiminum. 

Rokyo býður upp á ólíkar futon rúmdýnur til að mæta þínum þörfum en munurinn liggur fyrst og fremst í stífleika og efnum. 

Skoða futon rúmdýnur
Traditional futon dýna úr bómull frá Karup Design

Traditional futon

Stífleiki 6/6

13 cm bómullardýna sem kemst næst japönsku hefðinni. Dýnan gefur fastan, jarðbundinn stuðning og liggur nær gólfinu. Fyrir þau sem vilja stíft undirlag og einfaldleikann í fyrirrúmi.

Skoða nánar
Coco futon dýna frá Karup Design á japönskum rúmbotni

Coco futon

Stífleiki 3/6

16 cm bómullardýna með 3cm kjarna úr kókostrefjum. Bómullin aðlagar sig að líkamanum á meðan kókostrefjarnar veita stöðugan stuðning. Fyrir þau sem vilja fullkominn meðalveg. Okkar vinsælasta dýna.

Skoða nánar
Double Latex futon dýna frá Karup Design

Double latex futon

Stífleiki 1/6

18 cm bómullardýna með 8cm náttúrulegum latexkjarna sem einangrar hreyfingar og gefur mýkt án þess að sökkva. Fyrir þau sem vilja mýkri svefn með góðum stuðningi.

Skoða nánar

Triple latex futon

Stífleiki 2/6

20cm þykk dýna með bómullarlagi, ullarlagi, náttúrulegu latex og hrossahárum. Bómullin aðlagast líkamanum og veitir stuðning og latexið einangrar hreyfingar á meðan ullin og hrossahárin stuðla að góðu hitastigi og leiða raka burt. Fyrir þau sem vilja hlýrra og þurrara svefnumhverfi. 

Skoða nánar
Tatami strádýna undir futon dýnu

Tatami undirlag

Tatami (畳) strádýnurnar hafa verið notaðar í aldaraðir sem gólfefni á japönskum heimilum, til dæmis í svefnrými undir Futon rúmdýnur. Tatami andar vel og veitir stöðugan grunn undir Futon rúmdýnuna ásamt örlítilli dempun fyrir lífrænt form og eðli dýnunnar.

Karup Design framleiðir hágæða strádýnur eftir hefðbundnum japönskum stíl en hrísgrjónastráin eru þekkt fyrir að vera sérstaklega náttúrulegt og umhverfisvænt efni ásamt því að vera einstaklega endingargott.

Skoða nánar