Coco Futon
Coco futon dýnan er millistíf og samanstendur af 16cm bómullardýnu með 3cm kjarna úr kókostrefjum. Bómullin aðlagar sig að líkamanum þínum á meðan kókostrefjarnar veita stuðning. Dýnurnar eru handgerðar og fá einfaldleiki og lífrænt form hverrar dýnu að njóta sín sérstaklega vel.
Japanska orðið Futon (布団) er notað til að lýsa svefnplássi. Futon dýnur eru hefðbundnar japanskar rúmdýnur og eru mun þynnri en þær sem vestræn menning hefur vanist. Dýnurnar voru upprunalega eingöngu fylltar með bómull og/eða náttúrulegum trefjum sem gerði fólki kleyft að rúlla upp til geymslu yfir daginn og þar með nýta íbúðarrými á margvíslegan hátt.
Karup Design blandar saman hefðbundnum vinnubrögðum við vestræn áhrif og býður upp á nokkra valmöguleika eftir þörfum hvers og eins. Coco futon dýnan er okkar mest selda dýna.
Futon dýnur eru einna helst notaðar ofan á Tatami strádýnurnar en saman skapa þær einstaka svefnupplifun.
Athugið: Coco futon er í pöntun en hægt er að kaupa dýnuna núna og fá afhent eftir 4-6 vikur.
Efni
Stærð
Um vörumerkið