Skip to product information
Matreiðslubókin Fræ
1/4

Matreiðslubókin Fræ

9.990 kr

Fræ hefur að geyma rúmlega hundrað fjölbreyttar uppskriftir að gómsætum réttum úr plönturíkinu. Uppskriftirnar á síðum bókarinnar eiga það sameiginlegt að vera litríkar og bragðmiklar og það er á allra færi að reiða þær fram.

Grænmeti, ávextir, baunir, heilkorn, hnetur og fræ spila stórt hlutverk þó að fleiri hráefni komi að sjálfsögðu einnig við sögu, ásamt eftirréttum, ýmist sætum með döðlum eða lífrænum sykri. Plönturíkið nærir, hreinsar, styrkir, byggir upp og ver líkamann á óteljandi vegu. Bókin er fullkomin fyrir þau sem vilja fjölga girnilegum grænmetisréttum á matarborðinu.

Fræ er fyrsta matreiðslubók Örnu Engilbertsdóttur en hún trúir því staðfastlega að fegurðin búi í smáatriðunum og brennur fyrir matargerðina. Fallegar ljósmyndir bókarinnar tók Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir.

Útgefandi: Salka

Efni

Heimagerður grænmetismatur án dýraafurða.

Stærð

301 bls.

Um vörumerkið

Salka var stofnuð árið 2000 og gefur út allt frá matreiðslubókum að ljóðabókum og frá fræðibókum að barnabókum. Útgáfan og bókabúðin eru reknar af Dögg Hjaltalín og Önnu Leu Friðriksdóttur, sem jafnframt eru eigendur. Í gegnum tíðina hefur Salka gefið út gott úrval handbóka í bland við útgáfu á góðum barnabókum, skáldsögum, fræðibókum og öllu því sem gefur lífinu lit. 

Fleiri vörur

Matreiðslubókin Fræ

Fræ hefur að geyma rúmlega hundrað fjölbreyttar uppskriftir að gómsætum réttum úr plönturíkinu. Uppskriftirnar á síðum bókarinnar eiga það sameiginlegt að vera litríkar og bragðmiklar og það er á allra færi að reiða þær fram.