Skip to product information
Mini Nido Mocca
1/3

Mini Nido Mocca

45.990 kr

Notalegur futon stóll fyrir börn sem er auðveldlega hægt að taka í sundur og gera að leikdýnu. Leikdýnan verður að hálfmána sem passar til dæmis upp við vegg, undir klifurrimla eða með fallegri himnasæng svo eitthvað sé nefnt.

Futon dýnurnar eru sérstakt stolt Karup Design og stór partur af hönnunarstefnu fyrirtækisins. Fjölbreytt húsgögn frá fyrirtækinu bera stíl Futon hugmyndafræðinnar sem gengur einnig út á fjölvirkni og plássnýtingu. Framleitt í Evrópu.

Efni
Stærð
Um vörumerkið

Danska húsgagnafyrirtækið Karup Design var stofnað árið 1972 og sérhæfir sig í hönnun fjölnota húsgagna sem hámarka plássnýtingu á stílhreinan hátt. Vörumerkið hefur frá upphafi sótt hugmyndir í hefðbundnar japanskar svefnlausnir og fagurfræði í bland við skandinavísk áhrif.

Fleiri vörur

Matreiðslubókin Fræ

Fræ hefur að geyma rúmlega hundrað fjölbreyttar uppskriftir að gómsætum réttum úr plönturíkinu. Uppskriftirnar á síðum bókarinnar eiga það sameiginlegt að vera litríkar og bragðmiklar og það er á allra færi að reiða þær fram.