Skip to product information
Triple latex futon

Triple latex futon

180,990 kr

Triple latex dýnan er 20cm þykk og samanstendur af bómullarlagi, ullarlagi, náttúrulegu latex og hrossahárum. Bómullin aðlagast líkamanum og veitir stuðning og latexið einangrar hreyfingar á meðan ullin og hrossahárin stuðla að góðu hitastigi og leiða raka burt. 

Japanska orðið Futon (布団) er notað til að lýsa svefnplássi. Futon dýnur eru hefðbundnar japanskar rúmdýnur og eru mun þynnri en þær sem vestræn menning hefur vanist. Dýnurnar voru upprunalega eingöngu fylltar með bómull og/eða náttúrulegum trefjum sem gerði fólki kleyft að rúlla upp til geymslu yfir daginn og þar með nýta íbúðarrými á margvíslegan hátt.

Karup Design blandar saman hefðbundnum vinnubrögðum við vestræn áhrif og býður upp á nokkra valmöguleika eftir þörfum hvers og eins.

Futon dýnur eru einna helst notaðar ofan á Tatami strádýnurnar en saman skapa þær einstaka svefnupplifun.

Efni

Áklæði: 100% bómull.
Fylling: 6cm bómullardýna, 4cm ull, 6cm latex, 2cm hrossahár
Bómullardýna: blanda af 90-95% bómull og 5-10% pólýester.

Áklæði dýnunnar er úr 100% bómull og þolir ekki bleytu. Notið þurran klút til að þurrka bletti.

Stærð

90cm x 200cm x 20cm
120cm x 200cm x 20cm
140cm x 200cm x 20cm
160cm x 200cm x 20cm
180cm x 200cm x 20cm
200cm x 200cm x 20cm

Um vörumerkið

Danska húsgagnafyrirtækið Karup Design var stofnað árið 1972 og sérhæfir sig í hönnun fjölnota húsgagna sem hámarka plássnýtingu á stílhreinan hátt. Vörumerkið hefur frá upphafi sótt hugmyndir í hefðbundnar japanskar svefnlausnir og fagurfræði í bland við skandinavísk áhrif.

Fleiri vörur

Matreiðslubókin Fræ

Fræ hefur að geyma rúmlega hundrað fjölbreyttar uppskriftir að gómsætum réttum úr plönturíkinu. Uppskriftirnar á síðum bókarinnar eiga það sameiginlegt að vera litríkar og bragðmiklar og það er á allra færi að reiða þær fram.